Umfram það tónlistarfólk sem GLITSKÝ er með á skrá, bjóðum við upp á sérfræðiþjónustu fyrir valin verkefni.


Þjónustan nær meðal annars til:

  • Uppsetning kynningarpakka (EPK) & ráðgjöf við útgáfuferli

  • Showcase tónlistarhátíð – Viðvera og/eða ráðgjöf

Uppsetning kynningarpakka (EPK)
til að undirbúa útgáfu

Kynningarpakki er settur saman svo auðvelt sé að miðla upplýsingum um verkefnið áfram til mögulegra samstarfsaðila, fjölmiðla, og annarra sem koma að verkefninu.

Markmiðið er að auðvelda öðrum að skilja hver stendur að baki verkefninu og draga fram það sem gerir það einstakt og eftirminnilegt. Gott kynningarefni byggir á skýrri frásögn sem endurspeglast í gegnum allt ferlið, hvort sem um er að ræða útgáfur, viðtöl eða önnur tækifæri.

Kynningarpakki getur litið mismunandi út eftir útgáfuplani og markmiðum, en fullkláraður EPK telur yfirleitt:

  • Æviágrip (e. Artist Bio)

  • Ljósmyndir sem fjölmiðlar mega nota (e. Press Photos)

  • Einblöðung fyrir fagaðila (e. Industry One-Sheet)

  • Fréttatilkynningu um næstu útgáfu (e. Press Release)

GLITSKÝ býður eftirfarandi þjónustu fyrir valin verkefni:

  • Ráðgjöf — frá 69.000kr/mánuði + VSK
    Fyrir þau sem vilja sjálf sjá um framkvæmd en fá aðgang að verkferlum, sérfræðiþekkingu og ráðgjöf GLITSKÝ. ‍ ‍

  • Fagtexti — 89.000 kr + VSK
    Æviágrip • Einblöðungur • Fréttatilkynning
    Fagtexti er fullunninn texti, svo sem æviágrip eða fréttatilkynning, tilbúinn til dreifingar til fjölmiðla, fagaðila eða annarra samstarfsaðila. Verð miðast við einn texta á einu tungumáli og innifelur 2 klst. fund til upplýsingaöflunar, stefnumótunarvinnu, fullunninn texta og tvær umferðir af athugasemdum.

  • Fagtexti á íslensku og ensku — 149.000 kr + VSK
    Sami fagtexti er unninn samhliða fyrir bæði tungumál.

  • Fullbúinn kynningarpakki (EPK) — frá 349.000 kr + VSK
    Innifalið: Stefnumótunarfundir, æviágrip, útgáfutexti/fréttatilkynning, industry one-sheet, undirbúningur og umsjón með myndatöku og fullbúinn kynningarpakki með öllum gögnum skipulögðum fyrir fjölmiðla og samstarfsaðila.

Kostnaður við ljósmyndara og annan utanaðkomandi kostnað er ekki innifalinn.

Fyrir umfangsmeiri þjónustu í kringum útgáfuferli, vinsamlegast sendið inn beiðni í gegnum formið hér að neðan. Athugið að við tökum að okkur takmarkaðan fjölda verkefna hverju sinni.

frá fyrri samstarfsaðilum

“Taking my first serious steps in the music industry, I consider myself incredibly lucky to have Hrefna as my guide and mentor. She has helped me become better understood, more organized, and more confident, while teaching me the fundamentals of marketing, branding, and music management.”

— Sólveig Matthildur, Kælan Mikla

“I 100% recommend working with Habbi. She brings extensive experience from the music industry and provides detailed, professional guidance on marketing and the smartest next steps for each artist.”

— Silja Rós, Artist 

“Hrefna’s project management skills, attention to detail, and ability to lead teams while adapting to change truly stood out. She combines strategic thinking with excellent communication.”

— Anna Jóna Dungal, A&R Sony Music

Showcase hátíðir

Var verið að bóka þig á showcase hátíð?

TIL HAMINGJU. Nú fyrst byrjar vinnan af alvöru.

Showcase hátíðir geta skapað mikilvæg tækifæri fyrir tónlistarfólk til að koma sér á alþjóðlegan markað með því að koma á samtali við bókunarskrifstofur, PR-fyrirtæki, útgáfufélög og aðra alþjóðlega fagaðila.

Til þess að ná þeim markmiðum þarf að undirbúa sig vel, vera með skýr markmið áður en haldið er af stað, og fylgja eftir þeim samtölum sem sett voru af stað yfir hátíðina. Fyrir valin verkefni tekur GLITSKÝ að sér að fylgja verkefnum í gegnum showcase.

Stuðningur getur meðal annars falið í sér:
Stefnumótun · Fagaðilaleit · Fundarboð · Tengslamyndun · Viðvera á hátíð · Eftirfylgni

Þjónustan er bæði í boði fyrir staka hátíð eða röð showcase-hátíða.

Óska eftir samstarfi við GLITSKÝ

Við tökum að okkur takmarkaðan fjölda verkefna hverju sinni og veljum verkefni út frá umfangi, tímasetningu og því hvar sérfræðiþekking okkar nýtist best.

Segðu okkur frá þér, verkefninu og því sem þú ert að leita að svo við getum metið hvort og hvernig GLITSKÝ geti aðstoðað.